Körfubolti

„Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“

Siggeir Ævarsson skrifar
Finnur Freyr Stefánsson er þjálfari Vals. Honum leiðist ekki að spila góða vörn
Finnur Freyr Stefánsson er þjálfari Vals. Honum leiðist ekki að spila góða vörn Vísir/Hulda Margrét

Andri Már Eggertsson var mættur í viðtöl í Ljónagryfjunni í kvöld og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sat fyrir svörum eftir sigur hans manna á Njarðvík í öðrum leik liðanna í 4-liða úrslitum Subway-deildar karla, 69-78.

Valsmenn fengu á sig 36 stigum minna en í fyrsta leiknum en Finnur útskýrði þessa sveiflu á einfaldan hátt. Hans menn einfaldlega lögðu sig mun meira fram en í síðasta leik.

„Miklu meira „effort“ sem við lögðum í þetta. Miklu meiri orka. Ég veit ekki hversu stórt hlutfall af þessum stigum sem þeir skora á okkur eru í hraðaupphlaupum eftir heimskulega tapaða bolta þá held ég að við höfum verið að gera helvíti vel á þá á hálfum velli eftir fyrsta leikhluta.“

Valsmenn lokuðu vel á Njarðvíkinga í seinni hálfleik en heimamenn skoruðu aðeins tíu stig á síðustu tíu mínútunum. Finnur sagði að varnarleikurinn væri aðalsmerki liðsins, nú sem endranær.

„Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn og frá því að ég kom í Val og bara á mínum ferli. Vörnin í síðasta leik var hræðileg og mér fannst þetta byrja allt þar. Við erum ekki besta sóknarliðið í heimi, við erum ekki að fara að verða það á næstu vikum. En vörnin verður að vera til staðar alltaf og við verðum að setja allt okkar púður þar og reyna að finna svo leiðir hinumegin.“

Frank Booker yngri byrjaði inn á í kvöld á kostnað Hjálmars Stefánssonar. Frank Booker eldri var í stúkunni í kvöld en það virtist þó ekki hafa haft áhrif á þá ákvörðun að setja þann yngri í byrjunarliðið. Booker skilaði níu stigum í kvöld og lét finna rækilega fyrir sér varnarmegin einnig.

„Booker var góður í síðasta leik og Hjálmar ekki. Nú var Booker góður og Hjálmar góður líka þannig að sú ákvörðun gekk vel.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×